Bakgrunnur

*Upplýsingar

Ferðamálastofa hefur staðið fyrir könnun meðal erlendra ferðamanna frá því í júní árið 2017 í samstarfi við Hagstofu Íslands. Gögnum er safnað allt árið um kring og er markmiðið að afla tölfræðilegra upplýsinga til að gefa skýra mynd af atferli, upplifun og viðhorfum ferðamanna.

Talnaefni úr Landamærarannsókn fyrir ágúst 2024 vantar vegna galla í gögnum.
Talnaefni vantar á tímabilunum apríl-júní 2020 og september 2020-maí 2021 vegna takmarkana á ferðalögum þegar kórónuveirufaraldurinn gekk yfir.

Fyrirvari Mælaborðs ferðaþjónustunnar

Ferðamálastofa leitast við að hafa allar upplýsingar sem fram koma á mælaborði ferðaþjónustunnar áreiðanlegar og réttar. Ferðamálastofa ábyrgist ekki áreiðanleika þeirra gagna sem birt eru og ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til notkunar upplýsinga á mælaborði ferðaþjónustunnar. Öllum er heimil afnot upplýsinga á mælaborði ferðaþjónustunnar. Hafa ber þó í huga að þar sem uppruni gagna er mismunandi, gilda mismunandi skilmálar um dreifingu og nýtingu gagna sem eru í mælaborði ferðaþjónustunnar. Öll gögn í mælaborði ferðaþjónustunnar eru í eigu stjórnvalda og eru ekki framseljanleg. Vinsamlegast getið heimilda.